Galdraskólinn

38 Fjögralaufa smárinn! Hún tók þurrkaða plöntuna varlega upp úr hálsmálinu og bar hana að skráargatinu Það heyrðist lágur smellur og dyrnar opnuðust Í gegnum rifuna sá Katja skólabróður sinn Hún var of sein! Kolbeinn stóð inni í kirkjunni og þuldi særingar í hálfum hljóðum Það heyrðist krafs undir kirkjugólfinu Hvað átti hún að gera? Ef Kolbeinn var orðinn nógu klikkaður til þess að reyna að vekja upp dáið fólk þá var ekki gott að segja hvað hann myndi gera ef hann sæi hana Hvað gæti verið undir gólfinu? Særing: að fara með töfraþulu

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=