Galdraskólinn

33 – Ái! Katja hafði stungið upp í sig kartöflu af disknum sínum en um leið og kartaflan kom í munninn á henni fann hún að þetta var ekki kartafla heldur steinn Kolbeinn hló eins og hýena á meðan Katja spýtti út úr sér steinvölunni og renndi tungunni yfir tennurnar til þess að kanna hvort eitthvað væri brotið Hún gaf Kolbeini illt auga – Þetta er æðislegt! Pældu í því, maður gæti látið bunka af pappírsrusli líta út eins og peninga og keypt sér hvað sem er! sagði Kolbeinn og það var glampi í augunum á honum – Ég hélt að þú vildir ekki stela, sagði Katja og potaði í tómatinn á disknum til þess að vera viss um að hann væri örugglega tómatur – Það er ekki að stela! sagði Kolbeinn Það er bara að gabba fólk! Ég meina, ef einhver heldur að ég sé að láta hann fá peninga í alvöru þá get ég ekki gert að því Svo fór hann aftur að hlæja Hvernig vill Kolbeinn nota galdrana? Af hverju var Katja fúl út í Kolbein?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=