Galdraskólinn

28 Svo heyrði hún Loft flissa og hún skildi Loftur var frábær í því að láta hluti líta út fyrir að vera eitthvað allt annað en þeir voru Katja fann að hún öfundaði Loft Af hverju var þetta svona auðvelt hjá honum? Hún starði niður fyrir sig en sá enn ekkert nema þriggjalaufa smára Við hliðina á henni stundi Gudda af vellíðan og hallaði sér aftur í grasinu – Að hugsa sér, sagði hún svo Að einmitt í þessum hlíðum hafi forfeður okkar og formæður líka legið í sólinni – Ég á enga svoleiðis forfeður Orðin hrukku upp úr Kötju, alveg óvart Gudda settist aftur upp – Enga forfeður? Þvættingur Katja ætlaði að byrja að útskýra en Gudda greip fram í fyrir henni Hvað eru forfeður og formæður ? Hvað merkir þvættingur ?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=