Galdraskólinn

20 Gudda hraut og Loftur litli átti það til að ganga í svefni Katja gat aldrei verið ein, nema á klósettinu og þar var yfirleitt einhver búinn að banka ef maður hafði verið þar í meira en fjórar mínútur Nei Þetta var ekki alveg satt Það sem Kötju fannst verst af öllu var að hún var enn ekki búin að galdra neitt Hún mokaði undan sækúnum og hún klappaði fjörulallanum, skrýtinni en elskulegri skepnu, sem var gæludýr á bænum Hún þekkti margar lækningajurtir og hún var orðin mjög góð í því að teikna alls konar galdrastafi en það gerðist aldrei neitt þegar hún teiknaði þá Hún lagði draumstafi undir koddann sinn en í staðinn fyrir að dreyma eitthvað gagnlegt dreymdi hana bara fótbolta Hvernig leið Kötju á Saurbæ? Lestu um draumstafi á bls. 52.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=