Galdraskólinn

12 – Sprengja þarf blöðruna á grönunum svo kýrin komist ekki aftur ofan í sjó Það er gott, því þær mjólka miklu betur en venjulegar kýr Katja sagði þetta allt saman eins hratt og hún gat og stoppaði hvergi til að anda – Sprengja blöðruna? Eiríkur unglingur horfði á Kötju eins og hún hefði sagt eitthvað hræðilegt Hvað er eiginlega að þér? Sæmundur uppfræðari horfði líka dapur á hana – Hún veit bara ekki betur, Eiríkur minn Katja fann hvernig hún roðnaði Hún hafði ekki sagt neitt skrýtið, þetta stóð allt í þjóðsögunum! – Sækýr hafa verið friðaðar frá 1770, Katja, og það er stranglega bannað að afmynda þær! sagði Sæmundur Við á Saurbæ iðkum mannúðlegar aðferðir í sambúðinni við sækýrnar Af hverju ætli Katja hafi roðnað?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=