Galdraskólinn

8 Það var erfitt að draga töskuna á eftir sér upp heimreiðina en Katja minnti sjálfa sig á að galdranornir væru sterkar Kannski gæti hún látið töskuna svífa á undan sér niður að veginum þegar hún færi í haustfríið! Katja hresstist við tilhugsunina og gekk hraðar Þegar hún kom að sveitabænum hringdi hún dyrabjöllu og beið Enginn kom Hún bankaði Hún var að íhuga að leita að öðrum inngangi þegar hurðinni var svipt upp Fyrir innan stóð stelpa á hennar aldri – Hvað ert þú að gera hér? spurði hún – Ég … ég fékk bréf? sagði Katja Það hljómaði eins og spurning þegar hún sagði það – GUDDA! hrópaði stelpan, án þess að taka augun af Kötju Þessi nýja er komin!

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=