Gagga og Ari

1 Börnin langar í gotterí Vinur Dúlli hoppar um garðinn. Hann nagar gamlan skó og bítur gras. Hann gerir alls konar sniðuga hluti. Á endanum verður hann þó syfjaður. Hann lygnir aftur augunum og sofnar. Gagga og Ari velta fyrir sér hvað þau eigi að gera á meðan Vinur Dúlli sefur. Brátt segist Ari vera svangur. – Ég er líka sársvöng, stynur Gagga og nuddar magann. Börnin eru svo svöng að þau byrja að hugsa um gotterí. Þau gleyma alveg að þau ætluðu að hætta því.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=