Gagga og Ari

17 Vinur Dúlli er mikið krútt og feldurinn hans er mjúkur. Börnin gæla við hann og gefa honum meira að borða. Tíminn líður fljótt og þau gleyma sér alveg með nýja vininum í góða veðrinu. Í hádeginu koma mamma og pabbi. Þau spyrja hvort börnin vilji fá brauð og skyr. Gagga og Ari afþakka matinn. Það er svo gaman að leika að þau nenna ekki að borða neitt í hádeginu. Þeim líður eins og þau verði aldrei aftur svöng. Hvers vegna er ekki gott að sleppa því að borða í hádeginu?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=