Gagga og Ari

Börnin sofna sæl Gagga og Ari eru kát. Þau eru svo ánægð með kanínuna sína. – Nú er Vinur vinalegi áhugamál okkar, segir Gagga. – Nú er Dúlli dúllulegi áhugamál okkar, segir Ari. Pabbi hlær og klappar kanínunni. Síðan segir hann að Vinur Dúlli þurfi að hvíla sig og börnin þurfi að borða kvöldmat. Börnin hlýða pabba og skilja kanínuna eftir í nýja húsinu. Þau fara inn í húsið sitt með pabba. Mamma og pabbi elda fisk og búa til salat handa börnunum. Þau borða matinn með bestu lyst. Það er gott að borða hollan mat, eins og kanínur gera. Eftir matinn fara Gagga og Ari að sofa. Þau sofna södd og sæl í rúmum sínum. 14

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=