Gagga og Ari

Pabbi smíðar kanínuhús Gagga og Ari passa nýja vininn með stóru eyrun á meðan pabbi smíðar lítið hús handa honum. Vinur Dúlli nartar í gulrót og er alsæll. Hann liggur á milli barnanna og lygnir aftur augunum. Allt um kring vaxa fíflar sem eru hærri en Vinur Dúlli. Hann nartar í fíflana og grettir sig því þeir eru beiskir. Síðan sofnar hann í ilmandi grasinu. Loks lýkur pabbi við að smíða litla húsið. Þetta er ljómandi fallegt hús. Vinur Dúlli vaknar þegar Gagga tekur hann í fangið og setur hann inn í húsið. Hann skoðar hvern krók og kima og þefar spenntur. 12

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=