Gagga og Ari

11 Pabbi segir að kanínan sé karl. Börnin velta fyrir sér hvað hann eigi að heita. Göggu finnst að hann eigi að heita Vinur. Ara finnst að hann eigi að heita Dúlli. – Hann er svo vinalegur, segir Gagga. – Hann er svo dúllulegur, segir Ari. Eftir stutt þref hlýtur kanínan nafnið Vinur Dúlli. Pabba og mömmu líst vel á nafnið. Mamma segir að það sé bæði vinalegt og dúllulegt. Á hvaða hátt er sælgæti sætt? Og á hvaða hátt er kanína sæt?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=