Samvinna um læsi - Tillaga að foreldrafræðslu um lestur og lestrarnám barna í 1. bekk

12 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Stuðningur foreldra er mikilvægur Í snemmtækri íhlutun felst að bregðast fljótt við erfiðleikum einstakra nemenda með viðeigandi kennslu en ekki bíða og sjá til hvort þeir taki við sér. Þetta er gert til að auka líkur á að lestrarnámið gangi vel og til að koma í veg fyrir langvarandi lestrarvanda sem oft leiðir af sér minnkað sjálfstraust og vanlíðan í námi. Til að vita stöðu barnsins þarf að meta hana og á matinu eru aðgerðir byggðar. Ef ekkert er að gert verður lestrarvandinn viðvarandi. Börn sem eiga auðvelt með lestur lesa jafnan meira og taka því frekari framförum. Börn sem sækist lestrarnámið illa vilja lesa minna og komast yfir minna sem gerir það að verkum að þau bæta minna við orðaforða sinn. Ef þau fá ekki réttan stuðning og aðhald, komast jafnvel upp með að lesa lítið sem ekkert, fer þeim lítið fram. Þetta hefur verið kallað Mattheusaráhrif. Á Læsisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu má finna umfjöllun um lestrarkennslu og lestrarerfiðleika: • Góð lestrarkennsla • Lestrarerfiðleikar Í handbókinni Leið til læsis á bls. 27 og víðar í bókinni er fjallað um mikilvægi þess að bíða ekki og bregðast strax við þegar vísbendingar koma fram um lestrarvanda: • Leið til læsis - handbók Stuðningsefni Stuðningur foreldra er mikilvægur Fyrstu árin í grunnskólanum eru sérlega mikilvæg hvað varðar lestrarnám: • Mattheusaráhrif º Bilið milli nemenda sem eiga auðvelt með lestrarnám og þeirra sem eiga erfitt með það hefur tilhneigingu til að breikka sé ekkert að gert. • Snemmtæk íhlutun º Er að bregðast fljótt við erfiðleikum með viðeigandi kennslu. º Getur dregið úr og jafnvel fyrirbyggt vanda. Glæra 5

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=