5 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Opin og hreinskiptin samskipti milli aðila sem eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta eru afar mikilvæg. Þetta gildir ekki síst um samstarf heimila og skóla enda sameiginlegt hagsmunamál að efla nemendur á allan hátt. Eitt af lögbundnum hlutverkum grunnskóla er að hafa frumkvæði að þessu samstarfi. Í aðalnámskrá grunnskóla kemur fram að gagnkvæm upplýsingagjöf og samráð sé forsenda árangursríks skólastarfs. Þar er einnig bent á gildi þess að foreldrar kynnist daglegu starfi skólans, enda aukist þá líkur á þátttöku þeirra sem getur stuðlað að bættum árangri og líðan barnanna. Það vill gleymast að eina reynsla margra foreldra af starfi grunnskóla er eigin skólaganga og því nauðsynlegt að þeir fái tækifæri til að kynnast skólastarfinu og eiga samtal við kennara barna sinna um ólík hlutverk og ábyrgð í náminu. Þegar upp er staðið er farsælast að allir sem að námi barna koma taki höndum saman með gagnkvæmri virðingu fyrir þekkingu hvers annars. Þar sem áherslur skóla geta verið mismunandi verður að líta á þetta efni sem tillögu að foreldrafræðslu. Nauðsynlegt er að útbúin sé sérstök kynning í hverjum skóla, tekin afstaða til þess hve mikið af upplýsingum úr þessari handbók eru nýttar og hvort haldinn sé fundur eða efninu miðlað eftir öðrum leiðum. Uppsetning fræðsluefnisins er með þeim hætti að sett hefur verið upp dæmi um glærukynningu sem hægt er að styðjast við að eins miklu leyti og hentar hverjum skóla fyrir sig. Hverri glæru fylgir ítarlegri umfjöllun um efnið til að auðvelda flytjendum að skipuleggja mál sitt. Einnig eru tilvísanir í frekara lesefni og heimildir. Fræðslufundir fyrir foreldra um lestur og lestrarnám
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=