Fimbulvetur

89 fyrra lífs eftir að hafa komist í snertingu við allt sem Blær hafði upp á að bjóða? Hún sem hafði bara séð agnarsmátt brot af því sem beið hennar. Hún sem hafði staðið við gáttina út í víðari veröld og snúið bitur heim í stað þess að bíta á jaxlinn og taka stökkið. Og til hvers? Katrín hitti Lúkas á sama stað og venju- lega og þau gengu samferða í skólann eins og þau höfðu gert nánast daglega síðan þau voru smákrakkar. Hún hlustaði á hann rausa um það sem hún hafði misst úr skólanum og leyfði honum meira að segja að tala illa um Blæ án þess að grípa inn í. Skóladagurinn leið eins hversdagslega og hugsast gat. Davíð kennari var sá eini sem spurði hana eitthvað um Blæ og atvikið á yfirborðinu en annars var eins og allir aðrir væru búnir að gleyma gestinum. Eins og Blær hefði aldrei verið annað

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=