Fimbulvetur

81 Leikslok Blær kom færandi hendi inn í tóma borðstofu. Hún lagði ilmandi bakkann frá sér og kallaði á Katrínu en fékk engin svör. Þegar Gaffi svaraði ekki heldur grunaði hana hvað hafði gerst. Hún hljóp inn ganginn og opnaði dyrnar inn í kennslu- stofuna. Óttinn reyndist réttur. Katrín sat við vinnuborðið og Kennarinn bograði yfir henni. Á skjánum mátti sjá myndirnar hennar, textann hennar, allar upptökurnar sem hún hafði gert síðan þau lentu tæpum tveimur vikum áður. Allt sem hún hafði skrifað um bekkinn, skólann, fólkið neðanjarðar. Allt sem hún hafði skrifað um Katrínu. „Þetta er ekki eins og þér sýnist,“ sagði hún með öndina í hálsinum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=