Fimbulvetur

75 Svo bættist þriðja tungan við og sleikti kinnarnar á þeim svo kossinn slitnaði í sundur. Lágt geltið í Gaffa kveikti bros hjá þeim. Katrín hallaði sér dreymin aftur í hægindastólinn og fylgdist með Blæ teygja úr sér. Hún leit nú aftur út eins og hún hafði gert fyrsta daginn í skólanum. Katrín velti fyrir sér hvort hún hefði kysst strák eða stelpu en var fljót að komast að þeirri niðurstöðu að það skipti hana nákvæmlega engu máli. Hún fann enn fyrir hlýjunni af vörum hennar. „Ég ætla að athuga með matinn,“ sagði Blær og röddin titraði dálítið. „Ég bíð spennt,“ svaraði Katrín og sleikti út um. Blær reyndi að halda andlitinu en yfirgaf herbergið skælbrosandi og létt á fæti.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=