Fimbulvetur

72 af dýrgripum og djásnum – og endaði á að skilja hana eftir í hægindastól í fínni stofu þar sem búið var að leggja á borð fyrir glæsilega máltíð. „Bíddu bara,“ sagði Blær stolt, „ég hef látið elda handa okkur rétti úr hráefnum sem fæstir Jarðarbúar hafa nokkurn tímann smakkað!“ Eðlan sleikti út um, eins og hún fyndi bragðið af hverju orði. „Þú getur slappað af á meðan,“ hélt hún áfram, „og engar áhyggjur, þú bíður ekki einsömul.“ Blær flautaði og stærðarinnar loðdýr kom skokkandi inn í herbergið. Katrín hafði nú þegar séð ýmislegt ótrúlegt um borð í skipinu en lifandi hundur sló út allar fornminjar í heiminum. Hann var gulbrúnn og krullhærður með dásamlega falleg dökk augu. „Er hann – raunverulegur?“ hikstaði hún upp úr sér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=