Fimbulvetur

56 síður finna fyrir smá öryggi. Blær greip um hönd hennar á móti og Katrín hélt að hún vildi bola henni í burtu. Hún gladdist þegar hún fann fingurna herða takið utan um sig og þær dragast enn þéttar saman. Þrátt fyrir tvö þykk lög af hlífðarbúningum var þetta meiri nánd en Katrín hafði upplifað með henni og hún fékk fiðring í magann. Helst hefði hún viljað standa þarna í faðmlögum þangað til þær breyttust báðar í ísstyttur, svo augna- blikinu myndi aldrei ljúka, en þá rak hún augun í slóðina í snjónum og vaknaði aftur til veruleikans. Sporin héldu áfram þrjá eða fjóra metra og eftir það tók ekkert við. „Ætli það hafi flogið?“ velti Blær fyrir sér. „Þyrftu vængirnir ekki að vera ógnar- stórir?“ Þær litu báðar upp til himna, óttaslegnar að svífandi klær myndu steypa sér niður og kippa þeim með upp til skýja.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=