Fimbulvetur

55 Katrín fylgdist með Blæ klífa langleiðina upp hólinn og fann hroll fara um sig. Ekki var það kuldanum að kenna, því búningurinn var hlýr og notalegur, heldur hafði óttinn náð tökum á henni. „Bíddu eftir mér!“ kallaði hún en Blær nam ekki staðar fyrr en efst uppi á hólnum. „Er ekki allt í lagi?“ hvíslaði Katrín í hjálminn. „Sporin ...“ muldraði Blær, „... gufuðu upp.“ Katrín læddist á eftir henni og tók utan um Blæ með vinstri handlegg. Hún þurfti að halda jafnvægi en vildi ekki

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=