Fimbulvetur

36 Borgarl jós Enn og aftur hafði Blær breytt um útlit. Hárið sítt og grátt, augun biksvört, húðin skjannahvít. Eins og lifandi beinagrind á upplýstri skólalóðinni. Hún hló þegar hún sá hvað Katrínu var brugðið. „Fyrirgefðu, það er bara svo langt síðan ég hef leikið mér með sýndarbreytinn,“ útskýrði hún, „en hér virðist enginn þekkja þessa tækni!“ „Ég hef aldrei,“ byrjaði Katrín, „ég meina, ég hef lesið um svona lagað, þú veist, í sögum ...“ „Þetta er eiginlega alveg komið úr tísku heima,“ sagði Blær, „en ég get sagt þér að minn breytir er með þeim allra bestu á markaðnum. Augun koma samt alltaf upp um mann.“

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=