Fimbulvetur

30 Nemendurnir litu hver á annan og Katrín gerði sitt besta til að sýnast ekki sek um sannleikann. „Hversu lengi verður hann í burtu?“ hélt vinurinn áfram. „Sú ákvörðun liggur ekki hjá mér,“ svaraði Davíð. „Hverjum þá?“ „Mér,“ svaraði Blær og sneri sér í sætinu. „Lúkas verður í leyfi eins lengi og mér sýnist og ef þú heldur þig ekki á mottunni skal ég senda þig sömu leið.“ Þetta þaggaði niður í stráknum. „Þú mátt halda áfram núna, kennari,“ bætti Blær við og lét eins og hún ætti stofuna. Katrín skimaði yfir andlit bekkjarfélaga sinna. Blær vann sér greinilega ekki inn neina velvild hjá þeim með hegðun sinni. Aftur á móti gat Katrín ekki annað en sýnt aðdáun. Hafði unglingsstúlkan í alvörunni

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=