Fimbulvetur

25 „Þetta er víst það sem gerist þegar mann- fólk fær ekkert nema pöddur að borða,“ svaraði hún kaldhæðin, „það breytist sjálft í einsleit og iðandi skordýr.“ Hún glotti framan í Lúkas og eðlan ranghvolfdi augunum. Hann starði bara og átti greinilega erfitt með að melta orðin. „Skilur ekki einu sinni þegar verið er að móðga hann,“ muldraði Blær og sneri sér aftur að tölvuskjánum í borðinu. Katrín hefði sjálfsagt átt að stökkva fram og stoppa vin sinn. Í staðinn fylgdist hún með Lúkasi draga fram barmafulla skálina og það kviknaði á einhverri meinfýsni innra með henni. Hún vildi sjá hvað gerðist næst. Hún gæti jafnvel snúið því sér í hag. Þess vegna stóð hún aðgerðalaus og horfði á, eins og allir hinir. Lúkas lyfti skálinni yfir blágrænt hárið á nýju stúlkunni og hellti yfir hana kássunni með einu snöggu handtaki.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=