Fimbulvetur

22 Öfundaraugu „Þessi nýja stelpa er miklu meira en bara skrítin.“ Lúkas hrærði í matnum og frestaði því að fá sér bita. Merkilegt hvernig einn appelsínubátur gat eyðilagt heila máltíð. Á venjulegum degi hefði hann hámað í sig pöddukássuna, sársvangur að vanda. Nú virkaði hún eins og slepjuleg ruslahrúga í samanburði við ávaxtabitann. „Hvað er hún þá?“ spurði Katrín og skóf síðustu leifarnar úr sinni skál. „Hún er rík og hrokafull og hún hlær að okkur fyrir að hafa það verra en hún,“ sagði Lúkas með biturri röddu, lagði frá sér skeiðina og ýtti disknum frá sér. „Kannski þykir venjulegt að láta svona í kringum Satúrnus,“ svaraði Katrín og velti fyrir sér hvort hún ætti að biðja um

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=