Fimbulvetur

18 Þeir sletta skyrinu Katrín beið í matarröðinni og svipaðist um eftir nýju stúlkunni en hún var hvergi sjáanleg. Kannski vissi hún ekki að hún þyrfti að fara í röð til að fá sér að borða. Í geimnum þurfti ábyggilega enginn að bíða í röð. Hún heyrði krakkana á undan sér pískra eitthvað sín á milli og benda. Katrín sá þá hvar Blær sat ein á miðju langborði með stórt nestisbox fyrir framan sig. Eins og ekkert væri eðlilegra dró hún fram banana, epli, appelsínu og heilan haug af jarðarberjum. Röðin hætti alfarið að hreyfast. Það var eins og tíminn stæði í stað á meðan allir fylgdust með henni stinga upp í sig jarðarberi og kjammsa vel og lengi á því. Stúlkan virtist skynja að allra augu væru á henni og njóta þess í botn. Jafnvel naut hún þess meira en

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=