Evrópa

Kennslubók þessi í landafræði er einkum ætluð nemendum á miðstigi í grunnskóla. Bókinni er skipt í þrjá hluta. Í fyrsta hlutanum er fjallað um landshætti, gróðurfar, atvinnuhætti, auðlindir og orku, umhverfismál, samgöngur og fjölbreytt mannlíf í álfunni. Í öðrum hluta bókarinnar hefur Evrópu verið skipt upp í fjögur svæði, þ.e. Norðurlönd, Vestur-Evrópu, Austur-Evrópu og Suður-Evrópu. Í upphafi hvers kafla fyrir sig er fjallað almennt um svæðin. Því næst er fjallað um lönd sem valin voru sérstaklega og reynt með því móti að endurspegla náttúru og mannlíf Evrópu í heild. Í svæðaköflunum fjórum er einnig að finna helstu tölfræðiupplýsingar og annan skemmtilegan fróð- leik um öll lönd Evrópu. Umfjöllun um þessi landsvæði er brotin upp með fjölda áhugaverðra rammagreina sem taka á fjölbreyttum málefnum Evrópu. Þar má nefna marga sögulega atburði, órjúfanlega hluti landfræðinnar eins og heimsstyrjaldirnar, þorska- stríðin, frönsku byltinguna, kalda stríðið og heimsveldi Evrópuþjóða. Í rammagreinunum er einnig fjallað um listir, mat og einstaka þætti í samgöngum. Í þriðja og síðasta hluta bókarinnar er fjallað um samvinnu í Evrópu. Þar fer fremst umfjöllun um Evrópusambandið og stofnanir þess. Bókinni fylgja kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef. Höfundur bókarinnar er Hilmar Egill Sveinbjörnsson, landfræðingur og skólastjóri. 40023 EVRÓPA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=