Einmitt! Lærum íslensku 1c - verkefnabók

34 Teiknið mynd eftir lýsingunni Hér er hús á tveimur hæðum. Það eru fjórir gluggar og ein hurð á húsinu. Það er tré hægra megin við húsið. Það er bíll vinstra megin við húsið. Það er maður inni í bílnum. Það er stelpa á milli bílsins og hússins. Það er ský og regnbogi fyrir ofan húsið. Það er bolti undir bílnum. Það er strákur fyrir aftan tréð. Lýsið götumyndinni. Hvar er ísbúðin? Hvar er sólin? Hvað fleira er á myndinni?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=