7 Fylgihlutir og fleira Snyrtivörur og skartgripir gloss maskari augnskuggi augnblýantur kinnalitur eyrnalokkar svartur varalitur hálsmen Nafn: Rósa Hvernig snyrtivörur notar þú? Ég nota mest bleikt gloss, svartan augnblýant og maskara. Stundum nota ég líka brúnan augnskugga og bleikan kinnalit. Hvernig snyrtivörur notar þú aldrei? Ég nota aldrei ilmvatn. Það er oft sterk lykt af ilmvatni. Ég fæ höfuðverk af því. Hvernig skartgripi notar þú mest? Ég er stundum með eyrnalokka en ég er alltaf með úr sem ég fékk í jólagjöf frá foreldrum mínum. Nafn: Símon Hvernig snyrtivörur notar þú? Ég nota bara svartan augnblýant á augun og stundum svartan varalit á varirnar. Ég nota líka sjampó og hárnæringu. Hvernig snyrtivörur notar þú aldrei? Ég nota aldrei augnskugga. Hvernig skartgripi notar þú mest? Ég nota allt. Marga eyrnalokka, hálsmen og armbönd og svo á ég líka fullt af hringum. Því meira, því betra. 3 4
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=