Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

6 Eftirlýst Hvernig lítur Fríða út? Hvað er Max með á tönnunum? Hvernig hár er Ólafur með? Í hvernig fötum er Sofia? MORGUNTÍÐINDI Lögreglan lýsir eftir unglingum og kennara. Þau fóru úr skólanum klukkan fjögur í gær. Enginn hefur séð þau síðan. Ef þið sjáið þau eða getið gefið upplýsingar um ferðir þeirra hringið í lögregluna. Fríða er 15 ára. Hún er lágvaxin, með ljóst, stutt hár og blá augu. Hún er í bláum buxum, rauðri peysu og grænum strigaskóm. Sofia er 14 ára. Hún er hávaxin og grönn. Hún er með rautt hár. Hún er með brún augu og svört gleraugu. Hún er í grænum kjól, gulum jakka og svörtum skóm. Max er 16 ára. Hán er hávaxið og með svart, stutt hár. Hán er með græn augu. Max er með spangir á tönnunum. Hán er í svörtum íþróttagalla og hvítum strigaskóm. Ólafur er 45 ára. Hann er meðalhár, sköllóttur með blá augu og gleraugu. Hann er með skegg. Hann er í hvítri skyrtu og með bindi, í grænum jakka og svörtum buxum. 2

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=