Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

5 Jan: Þekkir þú Erlu og Guðrúnu? Artem: Ég veit ekki, hvernig líta þær út? Jan: Erla er hávaxin með stutt, dökkt, krullað hár og brún augu. En Guðrún er lágvaxin með slétt, ljóst, sítt hár og blá augu og með gleraugu. Þær eru bestu vinkonur. Artem: Ég þekki Guðrúnu en ekki Erlu. Af hverju ertu að spyrja? Jan: Sko, Guðrún var að tala um þig. Hún sá þig keppa í fótbolta um daginn. Kannski er hún hrifin af þér. Artem: Einmitt, heyrðu þarna er pabbi. Hann er að sækja mig. Jan: Hver er pabbi þinn? Artem: Þessi sem er meðalhár, sköllóttur, þybbinn, með mikið skegg og brún augu. Jan: Já, ég sé hann. Hann stendur hjá mömmu Jóhanns. Artem: Ó, er það hún sem er hávaxin, grönn, með rautt, sítt hár og blá augu? Jan: Já, hún og mamma mín eru vinkonur. Augu: blá, brún, græn, grá Hæð: hávaxinn, meðalhár, lágvaxin þybbinn, grannur Hár: sítt stutt slétt krullað dökkt ljóst brúnt rautt sköllóttur 1

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=