Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

46 Lífið í sveitinni Halló ég heiti Aron! Ég á heima í sveit. Mamma mín og pabbi eru bændur. Á bænum okkar eru kýr, kindur, hestar, hænur, kettir og hundar. Ég á þrjú systkini, tvær systur og einn bróður. Það er mikið að gera í sveitinni á vorin. Þá fæðast lömbin. Á sumrin förum við á stórum traktor út á túnin. Við sláum grasið svo að dýrin fái hey fyrir veturinn. Stundum fer ég með pabba á fjórhjólinu að reka kýrnar heim. Á haustin byrja ég aftur í skólanum. Skólabíllinn sækir krakkana á morgnana. Það eru bara sjö krakkar í bekknum mínum. Ég fer á fótboltaæfingu eftir skóla. Svo förum við með skólabílnum aftur heim. Heima fer ég stundum í tölvuna eða spila við systkini mín. Stundum fer ég á hestbak eða í heimsókn á næsta sveitabæ. Hvar býr Aron? Hvenær fæðast lömbin? Af hverju þarf að slá grasið? Hvernig fara krakkarnir í skólann? Hvað eru margir krakkar í bekknum hans Arons? Hvað gerir Aron eftir skóla? hestar hænur kindur köttur fjórhjól traktor hundur 30 31

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=