44 Bær Flora: Hvar býrð þú? Lillý: Ég bý á Selfossi, en þú? Flora: Ég bý hér á Akureyri. Lillý: Er Akureyri borg? Flora: Nei, Akureyri er bær eins og Selfoss. En Akureyri er stór bær. Hér er sjúkrahús, skólar, háskóli, búðir og allt sem við þurfum. Lillý: Já, það eru flottar búðir hér. Ég keypti mér peysu í gær. Flora: Það er gaman að kaupa föt hérna. En mér finnst líka gaman að fara í bíó, leikhús og á skauta. Ég fer oft á skauta eða skíði með vinum mínum og stundum í bíó en sjaldan í leikhús. Lillý: Það er frábært. Á Selfossi er ekki skautahöll en þar er sundlaug og ég fer oft í sund. Flora: Einmitt, ég hef komið á Selfoss. Ég keppti einu sinni í fótbolta þar og fór í sundlaugina og í ísbúð. Eru einhverjir sætir strákar á Selfossi? Lillý: Já, ég veit um einn! En hann er frátekinn! Er Akureyri borg eða bær? Hvað finnst Floru skemmtilegt að gera á Akureyri? Hvað gerði Flora þegar hún var á Selfossi? Eru sætir strákar á Selfossi? bær borg sveit 29
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=