Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

43 Perlan flugvél Það er ekki lest á Íslandi! Mér leiðist. Eigum við stinga af með lestinni? Velkomin til Reykjavíkur. Reykjavík er höfuðborg Íslands. Í borginni búa meira en 120.000 manns. Hér eru skólar, sjúkrahús, sundlaugar, íþróttahús, hótel, kaffihús, veitingastaðir, búðir, bakarí, apótek, bíó, kirkjur, leikhús og margt fleira. Stærsta kirkjan heitir Hallgrímskirkja. Á Íslandi er ekki kóngur og drottning en hér er forseti. Forsetinn býr á Bessastöðum. Margir eiga bíl og sumir nota hjól eða mótorhjól. En það er líka hægt að nota hlaupahjól eða taka strætó, rútu eða leigubíl. Hvað heitir höfuðborg Íslands? Hvað er hægt að gera í Reykjavík? Hvar býr forsetinn?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=