Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

40 Kæra dagbók! Þegar rútan stoppaði fórum við inn í skólann með töskurnar. Svo fórum við í skoðunarferð um bæinn. Fyrst löbbuðum við framhjá sjúkrahúsinu og síðan fórum við á kaffihús. Þar fengum við okkur kókómjólk og brauð. Við vorum mjög svangar eftir rútuferðina. Stína fór í búðina til að kaupa tannbursta. Búðin var hægra megin við kaffihúsið. Jóhanna þurfti að fara í apótekið að kaupa plástur. Svo fórum við aftur í skólann til að klæða okkur í íþróttafötin. Við kepptum klukkan tíu mínútur yfir fimm í íþróttahúsinu. Það gekk vel að keppa og við unnum leikinn. Eftir leikinn fórum við í sundlaugina. Næst fórum við á veitingastað til að borða kvöldmat. Veitingastaðurinn var á annarri hæð fyrir ofan bakaríið. Ég fékk hamborgara. Að lokum löbbuðum við aftur í skólann. Núna erum við að fara að sofa. Ég sef á dýnu á milli Jóhönnu og Stínu. Góða nótt. Fríða á milli vinstra megin hægra megin fyrir framan fyrir aftan í framhjá undir á fyrir ofan 28

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=