39 Hvar er taskan? Hvar er …? Hvar er …? Fríða ætlar að keppa í handbolta um helgina. Hún fer með öllum stelpunum í liðinu í rútu. Það tekur marga klukkutíma að keyra. Þær gista í skóla. Þær keppa á Akureyri í íþróttahúsinu. Fríða þarf að taka með alls konar dót. Hún er að flýta sér af því að rútan fer eftir klukkutíma. En hvar er allt dótið hennar? Svefnpokinn er inni í skáp. Síminn er á hillu fyrir ofan kaffivélina. Sólgleraugun eru á borðinu í stofunni. Handboltinn er undir stólnum. Handboltaskórnir eru við hliðina á stígvélunum. Regnjakkinn er á milli úlpunnar og trefilsins. Taskan er fyrir framan rúmið. 27
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=