Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

Í stofunni er sófi, stólar, stofuborð og sjónvarp. Hér eru líka bókahillur og lampi og nokkrar myndir á veggjunum. Það eru blóm í gluggunum og gluggatjöld. Það er eitt baðherbergi í íbúðinni. Þar er ekki bað en þar er sturta, vaskur, klósett og skápur fyrir handklæði og snyrtivörur. Eldhúsið er uppáhalds staðurinn minn í íbúðinni. Mér finnst gaman að baka og elda. Pabbi grillar oft fyrir mig samloku í samlokugrillinu þegar ég kem heim úr skólanum. 37 blandari spegill 25 gluggatjöld

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=