Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

29 Matarboð Hver grillaði kjötið? Hvað brotnaði? Hvaða grænmeti var í salatinu? Af hverju vildi mamma panta pítsu? Kæra dagbók! Í gær var matarboð heima hjá okkur. Þetta byrjaði allt mjög vel. Ég hjálpaði mömmu og pabba að elda matinn. Pabbi setti kartöflur í ofninn og bjó til sósu og svo fór hann út að grilla kjötið. Ég bjó til salat og skar gúrku, papriku og kál. Ég blandaði því svo saman í skál og setti nokkur bláber ofan á. Mamma bjó til eftirrétt. Það voru ávextir og ís. Mér finnst ís mjög góður. Bróðir minn var að hjálpa mér að leggja á borð, diska, glös, gaffla, hnífa og skeiðar. Hann missti eitt glasið og það brotnaði. Pabbi hjálpaði honum að þrífa upp glerbrotin. Gestirnir komu þegar allt var tilbúið. Pabbi var úti að grilla kjötið þegar þau komu. Þegar allir voru sestir við borðið, kom pabbi inn með kjötið. Kjötið var brennt og ónýtt. Pabbi var mjög vandræðalegur en mamma hló og sagði: „Eigum við að panta pítsu?“. Kristín 22

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=