28 Í matvörubúð Af hverju er Kristín í búðinni? Hver hitti vinkonu í búðinni? Var Kristín að stela úr búðinni? Kæra dagbók! Á morgun verður matarboð heima hjá mér og í dag fórum við í búðina til að kaupa ýmislegt sem vantaði. Pabbi skrifaði innkaupalista. Við hjálpuðum til við að setja í innkaupakerruna. Ég sótti grillkjöt, mjólk og brauð. Mamma ætlaði að finna hveiti og lyftiduft. Hún hitti vinkonu sína í búðinni og talaði svo lengi við hana að hún gleymdi hvað hún ætlaði að sækja. Pabbi náði í tómata, gúrku og banana. Þetta tók langan tíma. Ég var orðin pirruð og svöng og langaði að fara heim. Litli bróðir minn var alltaf að setja nammi í innkaupakörfuna. Ég sá stelpu hlaupa út úr búðinni. Hún var með eitthvað undir peysunni sinni. Var hún kannski að stela úr búðinni? Ég var mjög hissa og vissi ekki hvað ég átti að gera. Kristín 21
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=