27 fyrst síðan svo næst að lokum Bakar þú stundum? Hvað bakar þú? Hvaða kaka er uppáhalds kakan þín? g = grömm dl = desilítri tsk = teskeið msk = matskeið Uppskrift Súkklaðibitakökur Innihald 115 g smjör 2 dl sykur 2 egg 1 tsk vanilludropar 2 dl hveiti 1/2 tsk lyftiduft ¼ tsk salt 3 dl haframjöl 75 g súkkulaði, litlir bitar Aðferð 1. Hitaðu fyrst ofninn í 175 gráður (°C ). 2. Settu síðan smjör og sykur í skál og hrærðu vel saman með þeytara eða í hrærivél. 3. Settu svo egg út í og hrærðu aftur vel. 4. Settu næst hveiti, vanilludropa, lyftiduft, salt, haframjöl og súkkulaði út í skálina og blandaðu varlega saman. 5. Gerðu svo kúlur úr deiginu með skeið og raðaðu þeim á ofnplötu (notaðu bökunarpappír). 6. Settu að lokum plötuna í ofninn og bakaðu við 175 gráður í 10-12 mínútur. 20
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=