Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

24 Hvað er í matinn? Sara: Hvað er í matinn í skólanum í dag? Mohamed: Ég held að það sé pasta. Sara: Finnst þér pasta gott? Mohamed: Já, mér finnst það mjög gott. Sara: Hver er uppáhalds maturinn þinn? Mohamed: Hmm, leyfðu mér að hugsa. Mér finnst svo margt gott. En ég held að hamborgari sé uppáhalds maturinn minn. Sara: Já, hamborgari er mjög góður. Hvaða grænmeti setur þú á hamborgara? Mohamed: Mér finnst best að setja kál, tómat, gúrku, papriku og lauk. Já og ost! Sara: Mér finnst tómatar ekki góðir svo ég vil ekki tómata á hamborgara. Mohamed: En hver er uppáhalds maturinn þinn? Sara: Uppáhalds maturinn minn er lambakjöt. Hvað borðar þú í morgunmat? Ég borða … Hvað borðar þú í nesti? Ég borða … Hvað borðar þú í hádegismat? Ég borða … Hvað borðar þú í kvöldmat? Klukkan hvað borðar þú kvöldmat? Hver er uppáhalds maturinn þinn? Uppáhalds maturinn minn er … 18

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=