23 Hádegismatur Kvöldmatur Klukkan tólf (12:00) borðum við hádegismat í skólanum. Í dag er kjúklingur í matinn. Stundum er fiskur. Í bekknum mínum eru nokkrir krakkar sem vilja ekki borða fisk. Það finnst mér skrítið af því að mér finnst fiskur mjög góður matur. Suma daga er pasta eða grænmetisbuff. Við fáum alltaf grænmeti með matnum. Við fáum tómata, gúrku, papriku, kál, gulrót eða kartöflur. Mér finnst maturinn í skólanum mínum oftast góður. Ég borða kvöldmat klukkan sjö (19:00) með fjölskyldunni minni. Þá sitjum við öll við eldhúsborðið, borðum mat og tölum saman. Litla systir mín er svo þreytt eftir leikskólann að hún sofnar næstum því ofan í matinn. Við borðum til dæmis súpu, pítu, pítsu, hamborgara eða grjónagraut. Ég hjálpa stundum til við að elda matinn, leggja á borðið eða vaska upp eftir matinn. Hvað er í hádegismat í dag? Hvað finnst Ómari skrítið? Hvenær borðar Ómar kvöldmat? Af hverju sofnar systir hans ofan í matinn? kjúklingur fiskur kál gulrót tómatur kartöflur súpa hamborgari píta pítsa grjónagrautur paprika agúrka pasta grænmetisbuff 16 17
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=