Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

22 Máltíðir Morgunmatur Nesti Vekjaraklukkan mín hringir klukkan sjö. Ég er syfjaður. Mig langar að sofa lengur en ég má ekki verða of seinn í skólann. Ég fer í föt og fer inn í eldhús. Ég er ekki svangur og langar ekki að borða, en mamma segir: „Þú verður að borða morgunmat.“ Ég borða morgunkorn með mjólk. Um helgar má ég sofa lengi. Þá borða ég stundum pönnukökur, egg og beikon. Ég drekk appelsínusafa eða mjólk en mamma og pabbi drekka kaffi eða te. Eftir frímínútur í skólanum er ég svangur af því að ég borða svo lítið í morgunmat. Við fáum ávexti klukkan tíu mínútur yfir tíu. Sumir taka með sér nesti, samloku eða jógúrt. Ég nenni ekki að gera nesti svo ég borða ávextina sem við fáum í skólanum. Við fáum stundum epli, banana, perur, appelsínur, melónur, ananas eða plómur. Uppáhalds ávöxturinn minn er banani. Af hverju langar Ómar ekki að borða morgunmat? Hvað borðar Ómar í morgunmat um helgar? Af hverju er Ómar ekki með nesti í skólanum? Hvaða ávexti fá krakkarnir í skólanum? kaffi te mjólk appelsínusafi egg og beikon morgunkorn pönnukökur samloka ananas pera appelsína vínber epli plóma melóna banani jógúrt 14 15

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=