18 Fylgihlutir – skartgripir – snyrtivörur Spurnarorð Af hverju … ? Af því að … Af hverju ertu þreyttur? Af því að ég var að læra til kl. 11 í gærkvöldi. Af hverju er Júlía glöð? Af því að hún er ástfangin! Orðflokkar Ég er með ilmvatn. Ert þú með úr? Hún er með eyrnalokka. Eruð þið með gloss og maskara? Þær eru með heyrnartól. Nafnorð: Heiti á hlutum, dýrum, fólki og fleiru. Dæmi: stelpa, hús, sól. Sagnorð: Orð um það sem við gerum: Dæmi: að dansa, að skrifa. Lýsingarorð: Orð sem lýsa hlutum, dýrum, fólki og fleiru. Dæmi: gulur, stór Orðflokkafjör – spilareglur Notið tening og spilakarla . Kastið teningnum og færið spilakarlana eftir spilaborðinu samkvæmt tölunni á teningnum. Svarið því sem stendur á reitnum sem þið lendið á. Stundum lendið þið á snáki og hann rekur ykkur til baka. Stundum eruð þið heppin og lendið á stiga sem færir ykkur áfram í spilinu! Gangi ykkur vel!
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=