Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

13 Sara: Hvernig líður þér í dag? Jan: Mér líður vel. Ég er mjög glaður. Sara: Af hverju? Jan: Af því að vinur minn kom í heimsókn frá Póllandi. Sara: Það var skemmtilegt. Kom hann óvænt? Jan: Já, ég var svo hissa að sjá hann. Ég hef ekki hitt hann í ár og ég vissi ekki neitt! Sara: Hefur þú saknað hans mikið? Jan: Já, mjög mikið. Sara: Ég skil það. Ég sakna líka stundum vina minna. Jan: En hvernig líður þér Sara? Sara: Ekki vel. Jan: Af hverju? Sara: Af því að ég er svo syfjuð og svo er ég líka svöng. Jan: Já, ég verð oft pirraður þegar ég er svangur eða þyrstur. Sara: Fáum okkur að borða. Jan: Já gerum það. Þá líður okkur betur. Af hverju var Jan glaður? Af því að … Af hverju líður Söru ekki vel? Af því að … Hvernig líður þér í dag? Af hverju? Verður þú stundum pirruð/pirraður/pirrað? Af hverju? Verður þú stundum reið/reiður/reitt? Af hverju? Verður þú stundum ….? (veljið orð á listanum á bls. 12) Af hverju? 13

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=