Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

11 Af hverju … ? Af því að … Læknir, tannlæknir og augnlæknir Anna er veik. Henni er illt í höfðinu og hún er með kvef. Hún þarf að fara til læknis. Læknirinn skoðar hana og skrifar lyfseðil. Hún þarf að taka lyfin tvisvar sinnum á dag í fjóra daga. Pabbi hennar fer í apótek og kaupir lyfin. Af hverju fer Anna til læknis? Af því að … Max er með tannpínu og þarf að fara til tannlæknis. Hán gleymir stundum að bursta tennurnar. Tannlæknirinn skoðar tennurnar. Hán er með skemmda tönn og það þarf að bora og gera við tönnina. Af hverju er Max með tannpínu? Af því að … Jan sér ekki vel á töfluna í skólanum og stundum er honum illt í augunum. Mamma hans fer með hann til augnlæknis. Hann þarf að fá gleraugu. Af hverju þarf Jan að fá gleraugu? Af því að … Vissir þú? Á Íslandi kostar lítið eða ekkert fyrir börn og unglinga að fara til læknis, tannlæknis og augnlæknis. 9 10 11

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=