Einmitt! Lærum íslensku 1c - lesbók

10 Hvernig er heilsan? Símtal Anna: Halló Bill. Ég fer ekki á handboltaæfingu í dag. Bill: Af hverju ekki? Anna: Af því að mér líður illa. Ég er veik. Ég er með hita og mér er illt í hálsinum. Bill: Æ, það er ekki gott. Anna: Nei, ég þarf að vera heima. Bill: Já, það er gott að sofa mikið og muna að drekka vatn. Pabbi minn segir það. Anna: Ég kem ekki í skólann á morgun. Mamma ætlar að senda tölvupóst til kennarans. Bill: Láttu þér batna! Anna: Takk fyrir. Ég er veikur. Ég er með hita. Mér er illt í höfðinu. Ég er með höfuðverk. Ég meiddi mig. Ég er með sár og ég þarf plástur. Mér er illt í maganum. Ég er með magapínu. Honum er illt í höfðinu Henni er illt í maganum Háni er illt í öxlinni Honum/henni/háni líður vel Honum/henni/háni líður illa Mér er illt í hálsinum. Ég er með kvef. Ég er ekki veik. Ég er frísk! Hvernig líður þér? Mér er svo illt í tönninni. Ég er með tannpínu. 7 8

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=