60 Fornöfn (fn.) • Skiptast í nokkra flokka – Dæmi: persónufornöfn, eignarfornöfn • Hafa persónu, kyn, eru til í eintölu og fleirtölu og fallbeygjast Persónufornöfn (pfn.) et. ég þú hann, hún, hán, það ft. við þið þeir, þær, þau Eignarfornöfn (efn.) • Eintala: minn, mín, mitt, þinn, þín, þitt – Bróðir minn, systir þín, barnið mitt • Fleirtala: mínir, mínar, mín, þínir, þínar, þín – Bræður mínir, systur þínar, börnin þín Meira um fornöfn á bls. 18 og 21 Samtengingar (st.) • Tengja saman orð eða setningar • Beygjast ekki og hafa ekki kyn – og, en, eða, fyrst, svo, síðan, af því að Atviksorð (ao.) • Til dæmis orð um tíma: stundum, oft, aldrei, alltaf, tvisvar, þrisvar • Spurnarorð eru atviksorð: Hvenær, hvernig, hvaða, hvar, hvert • Beygjast ekki og hafa ekki kyn – Ég bursta alltaf tennurnar á kvöldin – Ég mæti tvisvar (2X) í viku á æfingu – Hvenær er stærðfræðitíminn? – Hvaða föt á ég að fara í? Meira um atviksorð á bls. 21 • Dæmi um fallbeygingar pfn. Mig langar í sund. Finnst þér gaman að spila fótbolta? Mamma hans, pabbi hennar, systir háns
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=