Ég, þú og við öll

46 Þá er þessarri kynningarferð um hugtök, sögur og staðreyndir um jafnrétti lokið en ferðalagið er samt bara rétt að hefjast. Nú takið þið við og stýrið ykkar ferðalagi sjálf og vonandi með jafnréttisgleraugun á nefinu. Eftir kynningarferðina erum við komin með verkfæri í hendur til að geta betur skilið og rætt saman um jafnréttismál. Við skulum nota þessi verkfæri til að byggja betra og réttlátara samfélag fyrir alla. Við breytum kannski ekki heiminum ein en hvert skref í átt að meira jafnrétti er mikilvægt. Gleymum heldur ekki að við erum öll hluti af samfélagi og getum haft meiri áhrif ef við vinnum saman.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=