Ég, þú og við öll

Vegna þess að ég er stelpa … Í afskekktu þorpi … … í fátæku landi … fæðist ég. Mamma mín er fimmtán ára gömul svo ég er heppin að við lifðum báðar af … … barneignir verða mörgum ungum mæðrum að bana. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin ef ég held lífi. Um 100 milljón stúlkubörn hafa horfið vegna þess að foreldrar þeirra hefðu kosið að eignast strák. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin ef ég fæ nógan mat. Það er líklegra að stelpur þjáist af vannæringu, vegna þess að foreldrarnir gefa strákum oft að borða á undan og maturinn er af skornum skammti. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin ef ég fæ að mennta mig. Í fátækum löndum eru stelpur í meirihluta þeirra sem ekki njóta menntunnar. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin ef ég held heilsu. Í Afríku sunnan Sahara eru unglingsstelpur tveir þriðju hlutar allra HIV- og alnæmissmitaðra. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin ef ég verð ekki neydd til að giftast á barnsaldri. Á hverjum degi giftast 70.000 barnungar stelpur. Vegna þess að ég er stelpa … … er ég heppin að eignast ekki barn á meðan ég er sjálf enn á barn … og hefja annig sömu hringrásina aftur upp á nýtt. En þar sem ég bý er ekki nógu mikið af heppni fyrir alla. (Plan International, Because I am a Girl) 27

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=