Ég heyri þegar Maggi og stelpan koma en ég kem ekki fram fyrr en mamma er búin að kalla oft á mig. Ég verð að klára borðið í leiknum. Hún er með freknur. Og rautt hár. Stelpan. Þessi Véný, eða hvað sem hún heitir. Við sitjum við borðið. Ég reyni að horfa ekki á hana. Hún reynir að horfa ekki á mig. Mamma og Maggi horfa hvort á annað og þau horfa á okkur. Þau brosa eins og bjánar. 6
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=