Ég þoli ekki bleikt

Það læðist skrýtinn tónn inn í rödd mömmu. Falskur tónn. Þetta er tónn sem heyrist þegar fullorðið fólk reynir að sannfæra mann um eitthvað sem það veit sjálft að er alls ekki satt. Eins og að jólasveinninn sé til eða eitthvað svoleiðis. Ég segi ekki neitt, fer bara inn til mín og fer í tölvuna. Véný. Er það nú nafn. Við mamma höfum alltaf búið saman tvö ein. Eða næstum því alltaf. Pabbi minn bjó hjá okkur þegar ég var pínulítill. Svo flutti hann til útlanda. Ég sakna hans ekki neitt. Maður getur ekki saknað einhvers sem maður þekkir ekki. 4

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=